Gönguferğ

Stóri Meitill

Dagsetning

Miðvikudagur 19. ágúst 1998

Vegalengd (áætluğ)

5 - 8 kílómetrar

Tími

(áætlağur)

3 klst.

Stağur

Bílastæðið fyrir sunnan Rauðavatn, kl. 18:30 stundvíslega.

Lısing

Í dag miðvikudag 19. ágúst verða Toppatrítlsskórnir dregnir fram eftir sumarfrí og haldið til fjalla. Af veðurfræðilegum orsökum og vegna sumarfría hefur fyrirfram ákveðin áætlun Toppatrítlara raskast nokkuð en meiningin er að halda áfram þar sem frá var horfið í júlí. Að þessu sinni verður gengið á Stóra Meitil en það er fjall sem er rétt fyrir sunnan Hveradali. Vestan í Stóra Meitli er stór og mikill eldígur sem gaman er að skoða.

Þar sem farið er að skyggja snemma þá verður lengdin á göngutúrnum látin ráðast dálítið af skyggni, en búast má við að gengnir verði ca. 5-8 km. Eins og venjulega þegar haldið er í austurátt þá er stefnumótsstaðurinn á bílastæðinu fyrir sunnan Rauðavatn kl. 18:30 stundvíslega, og þaðan verður ekið upp í Hveradali.

Búnağur

Nesti, góður fótabúnaður, skjólfatnaður. og göngustafir.

Kort af

leiğinni

Því miður engin mynd. :-(

İmislegt

gagnlegt

Gagnlegir tenglar út og suður

Heimildir

Könnun á stağháttum.

 

Til baka